Fram er einum sigri frá Íslandsmeistaratitli kvenna í handbolta eftir 25:22-heimasigur á Val í þriðja leik liðanna í úrslitaeinvíginu í gærkvöldi. Fram er komið í 2:1 í einvíginu og verður meistari með sigri á útivelli á sunnudag.
Fram er einum sigri frá Íslandsmeistaratitli kvenna í handbolta eftir 25:22-heimasigur á Val í þriðja leik liðanna í úrslitaeinvíginu í gærkvöldi. Fram er komið í 2:1 í einvíginu og verður meistari með sigri á útivelli á sunnudag. Hafdís Renötudóttir í marki Framara átti sinn besta leik í einvíginu til þessa og varði 17 skot. Oftar en ekki var Hafdís mætt í hornið að verja neglur frá sterkum leikmönnum Vals. Þar fyrir framan hana var varnarleikur Framara glæsilegur og áttu Valskonur í stökustu vandræður með að finna glufur. 26