MIP Tom Cruise er stórkostlegur hlaupari.
MIP Tom Cruise er stórkostlegur hlaupari. — AFP
Ég hef alltaf reynt að telja sjálfum mér trú um það að ég sé með frábæran kvikmyndsmekk. Eftir því sem ég eldist þá verð ég í raun sannfærðari um það að hann sé í raun ekkert sérstakur.

Ég hef alltaf reynt að telja sjálfum mér trú um það að ég sé með frábæran kvikmyndsmekk. Eftir því sem ég eldist þá verð ég í raun sannfærðari um það að hann sé í raun ekkert sérstakur.

Ég elska ævintýramyndir/vísindaskáldskap eins og Lord Of The Rings, Harry Potter og Star Wars og ég gæti eflaust rökrætt og talað um þessar myndir við hvern sem hefur áhuga á því í marga klukkutíma. Ég hef hins vegar mjög gaman af hasarmyndum líka og í seinni tíð hafa Ethan Hunt og James Bond verið í miklu uppáhaldi. Ég meikaði aldrei James Bond þegar ég var ungur en í dag elska ég hann. Ég elska hins vegar amerísku útgáfuna af honum, Ethan Hunt, meira. Ég veit ekki hvað það er en það virðist fátt geta toppað Tom Cruise, sem leikur Ethan Hunt, hlaupandi út um allt á hvíta tjaldinu. Ég var lengi í afneitun um það að Tom Cruise væri einn af mínum uppáhaldsleikurum en staðreyndin er hins vegar sú að hann er það. Ef Tom Cruise leikur í myndinni þá get ég horft á hana aftur og aftur og aftur, sérstaklega Mission Impossible-myndirnar. Í júlí 2023 verður nýjasta MIP-myndin frumsýnd, Dead Reckoning, og það eru allar líkur á því að ég verði mættur í Lúxussalinn með popp og kók mér við hönd, á þá sýningu.

Bjarni Helgason

Höf.: Bjarni Helgason