Davíð Þór Jónsson
Davíð Þór Jónsson
[ Smellið til að sjá stærri mynd ]
Jón Magnússon lögmaður segir Davíð Þór prest og marxista hafi dæmt fólk í VG til helvítisvistar að loknu þessu jarðlífi og prestinn Sindra Geir á Akureyri tekið undir að ríkisstjórnin sendi fólk í lifanda lífi til helvítis.

Jón Magnússon lögmaður segir Davíð Þór prest og marxista hafi dæmt fólk í VG til helvítisvistar að loknu þessu jarðlífi og prestinn Sindra Geir á Akureyri tekið undir að ríkisstjórnin sendi fólk í lifanda lífi til helvítis.

Þessir kennimenn þjóðkirkjunar hefðu átt að skoða ritninguna örlítið áður en þeir kváðu upp sína dóma og þá er ekki úr vegi að skoða orð Jesú sem eiga við í þessu tilviki:

Dæmið ekki svo að þér verðið ekki dæmd. Því með þeim dómi, sem þér dæmið, munuð þér dæmd verða og með þeim mæli sem þér mælið mun yður mælt verða. Hví sérð þú flísina í auga bróður þíns, en tekur ekki eftir bjálkanum í auga þínu.(Matt.7.1-3)“

Marxistinn Davíð Þór hefur lengi fylgt stefnu í þjóðmálum,sem hefur búið fólki helvíti á jörðu í lifanda lífi og kostað tugi milljóna fólks lífið hvar svo sem er í veröldinni, sbr. í Sovétríkjunum sálugu og Kína hvað þá í Kambódíu. Ef til vill væri betra fyrir Davíð Þór og Sindra Glerárprest að huga betur að sálarheill sinni lifandi og láta vera að dæma aðra til eilífrar helvítisvistar og huga að því að fyrirgefningin er megininntakið í fagnaðarboðskap kristninnar.

Við erum sem betur fer ekki lengur á slóðum miðaldakirkjunnar með sinn rannsóknarrétt og galdrabrennur og vonandi dagar Davíð Þór ekki þar uppi mikið lengur þó ekki væri nema vegna eigin sálarheillar.“