30 ára Steinunn er Reykvíkingur, ólst upp í Grafarvogi en býr í Kópavogi. Hún er hjúkrunarfræðingur og starfar á Hjúkrunarheimilinu Eir í Grafarvogi. „Áhugamál mín eru að ferðast, eiga góðar stundir með vinum og fjölskyldu og slaka á í sundi.
30 ára Steinunn er Reykvíkingur, ólst upp í Grafarvogi en býr í Kópavogi. Hún er hjúkrunarfræðingur og starfar á Hjúkrunarheimilinu Eir í Grafarvogi. „Áhugamál mín eru að ferðast, eiga góðar stundir með vinum og fjölskyldu og slaka á í sundi.“

Fjölskylda Steinunn er í sambúð með Andra Þór Haraldssyni, f. 2.6. 1992, smiði hjá Íslenskum aðalverktökum. Dóttir þeirra er Sóldís María, f. 2021. Foreldrar Steinunnar eru Brynja Guðbjörg Harðardóttir, f. 1964, kokkur hjá BM Vallá, og Daði Kristjánsson, f. 1959, kokkur að mennt en starfar sem blöndunarstjóri hjá BM Vallá. Þau eru búsett í Grafarvogi.