Syrgt Joe og Jill Biden lögðu blómvönd að minnisvarða við skólann.
Syrgt Joe og Jill Biden lögðu blómvönd að minnisvarða við skólann. — AFP
Dómsmálaráðuneyti Bandaríkjanna mun rannsaka viðbrögð lögreglunnar í tengslum við skotárásina sem átti sér stað í Robb-grunnskólanum í Uvalde í Texas þar sem 21 var myrtur, þar af 19 börn.

Dómsmálaráðuneyti Bandaríkjanna mun rannsaka viðbrögð lögreglunnar í tengslum við skotárásina sem átti sér stað í Robb-grunnskólanum í Uvalde í Texas þar sem 21 var myrtur, þar af 19 börn.

Reiði almennings í Bandaríkjunum fer vaxandi eftir að í ljós kom að lögreglumenn biðu á göngum skólans meðan börnin voru lokuð inni í skólastofu með árásarmanninum, samkvæmt BBC.

Joe Biden forseti Bandaríkjanna og eiginkona hans Jill Biden lögðu blómvönd að minningarvarða fyrir utan skólann þegar þau heimsóttu hann í dag en mina en tvær vikur eru síðan Biden heimsótti Buffalo í New York, þar sem önnur fjöldaskotárás átti sér stað.

Biden var einnig viðstaddur kaþólska messu í Uvalde í dag, auk þess sem hann hitti fyrstu viðbragðsaðila og syrgjandi ættingja hinna látnu í einrúmi.

Baulað var á Greg Abbott, ríkisstjóra í Texas, þegar hann kom fram. „Við þurfum breytingar,“ hrópaði maður nokkur. Fagnaðarlæti brutust þó út þegar bílar Bandaríkjaforseta keyrðu fram hjá en hann hefur talað fyrir breytingum.

Í gær endurtók hann kröfu sína um að þingið myndi herða reglur um skotvopn.

„Við getum ekki bannað harmleiki, ég veit, en við getum gert Bandaríkin öruggari. Við getum loksins gert það sem við þurfum að gera til að vernda líf fólksins og barnanna okkar,“ sagði Biden í ræðu við háskólann í Delaware.