Ásgeir Páll og Kristín Sif ræddu um gesti sem koma óboðnir í heimsókn í morgunþættinum Ísland vaknar.

Ásgeir Páll og Kristín Sif ræddu um gesti sem koma óboðnir í heimsókn í morgunþættinum Ísland vaknar. Mörgum þykir þetta hvimleitt vandamál, enda hafa tímarnir breyst töluvert með tæknivæðingu á síðastliðnum árum og þykir flestum í dag þægilegast að fá að vita af komu vina og vandamanna áður en þeir láta sjá sig í forstofunni. Ásgeir sagðist þó vera með lausn við skyndilegum gestagangi; vera í útifötum þegar farið er til dyra!

Hægt er að hlusta á umræður Kristínar og Ásgeirs á K100.is.