Leigubílar Formaður Frama segir fjölgun leyfa ekki leysa vanda.
Leigubílar Formaður Frama segir fjölgun leyfa ekki leysa vanda. — Morgunblaðið/Unnur Karen
„Hvers vegna hundrað leyfi? Hvert er viðmiðið? Það er ekki hægt að leggja raunhæft mat á framboð og eftirspurn vegna þess að það er svo mikill svartur akstur,“ sagði Daníel O.

„Hvers vegna hundrað leyfi? Hvert er viðmiðið? Það er ekki hægt að leggja raunhæft mat á framboð og eftirspurn vegna þess að það er svo mikill svartur akstur,“ sagði Daníel O. Einarsson, formaður Frama, félags leigubílstjóra, í samtali við mbl.is í gær. Á hann þar við skutlara sem taka að sér að keyra fólk gegn greiðslu.

Innviðaráðherra fjölgaði atvinnuleyfum leigubifreiða um hundrað á höfuðborgarsvæðinu nýverið. Daníel sagði að fjölgun atvinnuleyfa myndi ekki leysa neitt, fjölga þyrfti leigubílstjórum. Þá þyrfti að hafa strangara eftirlit til að koma í veg fyrir svartan akstur.

Farveitur leysi ekki málið

En að fara í hina áttina og einfalda regluverkið, til dæmis heimila farveitur á borð við Uber?

„Já, en þá heldur áfram að vanta leigubíla. Það er það sem gerist. Þessir aðilar eru búnir að vera að taka af okkur á markaðnum, þess vegna fækkar okkur hratt,“ segir Daníel og kveðst ekki hlynntur farveitunum. Telur hann einnig að slíkt hafi slæm áhrif á launakjör.

Fjöldi heltist úr stéttinni meðan á faraldrinum stóð og skemmtanalífið stóð sem lægst.

„Vandinn snýst ekki um fjölda leyfa heldur að fá bílstjórana til að keyra. Það hefur verið samdráttur eftir Covid eins og alls staðar. Vegna þess að fólk getur ekki lifað af laununum sínum fer það í aðra vinnu,“ segir hann. Frami hafi átt að fá fund með félagsmálaráðuneytinu en ekkert hafi orðið úr því.

Hefur leigubílstjórum fjölgað aftur? „Já, fólk kemur aftur en ef þessi svarti akstur á að halda áfram, þá verður það ekki. Ólögmæt samkeppni er óviðunandi, það er bara stríð á götunni. Leigubílaakstur er lögvernduð starfsgrein og þarf að vera það til að halda úti þessari þjónustu,“ segir hann. veronika@mbl.is