Kennari Í skóla þarf vel menntaða kennara sem sýna metnað og vinna af fagmennsku segir Mjöll Matthíasdóttir um menntamál og kennsluna. Hún býr á Grenjaðarstað í Aðaldal og í gamla torfbænum þar er byggðasafn.
Kennari Í skóla þarf vel menntaða kennara sem sýna metnað og vinna af fagmennsku segir Mjöll Matthíasdóttir um menntamál og kennsluna. Hún býr á Grenjaðarstað í Aðaldal og í gamla torfbænum þar er byggðasafn. — Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is „Íslenskir skólar eiga að vera í fremstu röð,“ segir Mjöll Matthíasdóttir, nýr formaður Félags grunnskólakennara. „Í skólana þarf vel menntaða kennara sem sýna metnað og vinna af fagmennsku.

Sigurður Bogi Sævarsson

sbs@mbl.is

„Íslenskir skólar eiga að vera í fremstu röð,“ segir Mjöll Matthíasdóttir, nýr formaður Félags grunnskólakennara. „Í skólana þarf vel menntaða kennara sem sýna metnað og vinna af fagmennsku. Til að svo megi verða þurfa kjör og starfsaðstæður kennara þó að vera samkeppnisfærar við aðrar stéttir. Vegna þeirra breytinga sem gerðar voru á lífeyriskjörum árið 2016 þarf nú að hefja leiðréttingu á launasetningu, eins og lofað var á sínum tíma. Sömuleiðis vil ég sjá félag okkar grunnskólakennara eflast og taka virkari þátt í skólamálaumræðu og stefnumörkun í samfélaginu.“

Framboð rökrétt framhald

Mennt er máttur er gjarnan sagt og eðli skólastarfs er að undirbúa ungt fólk fyrir framtíðina. Að því leyti er skólinn heillandi heimur; starfsvettvangur sem Mjöll Matthíasdóttir var ekki í neinum vafa um að væri fyrir sig. Auk þess að sinna kennslu hefur hún um langt árabil sinnt ýmsum trúnaðar- og forystustörfum fyrir grunnskólakennara. Framboð til formennsku í Félagi grunnskólakennara segir Mjöll því á margan hátt rökrétt framhald af sínum fyrri verkefnum.

Í formannskosningum fékk Mjöll um 42% greiddra atkvæða og felldi Þorgerði Laufeyju Diðriksdóttur, sitjandi formann, sem um 30% þeirra sem kusu greiddu atkvæði. Tæpur fjórðungur studdi Pétur Georgsson. Liðlega 46% þeirra sem rétt höfðu greiddu atkvæði, og segir Mjöll að vissulega hefði kjörsóknin þurft að vera meiri. Niðurstaða kosninga sé þó skýr. Enn liggur ekki fyrir hvenær nýr formaður tekur við embættinu og kosning annarra fulltrúa í stjórn stendur enn yfir. Mjöll kveðst þó fljótlega fara í ýmis verkefni til undirbúnings og muni næsta haust og vetur heimsækja kennara.

Verkefnið er endalaust

„Kjarasamningar eru verkefni sem aldrei tekur enda. Alltaf er eitthvað sem þarf að lagfæra og bæta því skóli er lifandi stofnun. Kennurum hefur eins og öðrum ekki staðið annað til boða síðustu ár en rammi lífskjarasamnings. Alltof snemmt er að tala um næstu samningsmarkmið; en atriði eins og jöfnun launa milli almenna og opinbera vinnumarkaðarins eru brýn.“

Skólastarf er alltaf áskorun. Nemendahópurinn er fjölbreyttur, tækni fleygir fram og nýir straumar og stefnur eru í deiglu, segir Mjöll. „Kennarastarfið hefur breyst mikið á mínum kennsluferli. Verkefnum hefur fjölgað en vinnuumhverfi og skipulag skólastarfs er oft nokkrum skrefum á eftir. Af þessum sökum eru mörg dæmi um að til dæmis ungir og frábærir kennarar snúi sér að öðru eftir fá ár í starfi. Þetta verður að stoppa.“

Börnin í ensku málumhverfi

Í umræðum um árangur í menntamálum á Íslandi er gjarnan stuðst við svonefndar PISA -kannanir. Skv. könnun sem gerð var árið 2018 og oft er vitnað til höfðu íslenskir 15 ára nemendur þá frá fyrri könnun gefið eftir í lesskilningi. Allstór hluti nemenda nær ekki að lesa sér til gagns svo vel sé. Af þessu segir Mjöll ástæðu til að hafa áhyggjur.

„Alltof oft ná tvítyngdir nemendur ekki að fóta sig í skólakerfinu. Leggja þarf meiri áherslu á íslenskukennslu. Þótt tæknin geti verið frábær þá þurfum við að læra að nota hana. Of algengt er að við réttum ómálga börnum snjalltæki til afþreyingar og hugum ekki að því hvaða efni þau nýta þar. Ég sé þetta meðal yngstu nemendanna. Þau hafa verið í ensku málumhverfi snjalltækja. Setningaskipan þeirra og orðaforði ber þess merki.“

Varðandi fjölþættan vanda margra grunnskólanema minnir Mjöll á að á Íslandi sé rekin sú stefna að skólinn sé án aðgreiningar. Þar eigi öll börn að hafa rými, sem feli í sér aðkomu fleiri sérfræðinga en kennara. Fyrst þurfi að greina stöðuna, það sama virki ekki fyrir alla nemendur. Síðan komi faglegt skipulag til að mæta hverjum nemanda fyrir sig.

„Nýleg lög um samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna eru nú að koma til framkvæmda og mikilvægt er að vel takist til. En allt þetta kallar á sterka vel mannaða skóla bæði af kennurum og öðru fagfólki. Við búum í dreifbýlu landi og rekstur skóla við þær aðstæður verður eðlilega aldrei neitt ódýr.“

Upptökusvæði Þingeyjarskóla, þar sem Mjöll starfar, er Aðaldalur, Reykjadalur og Kaldakinn. Þetta er samrekinn leik-, grunn- og tónlistarskóli með rúmlega 70 grunnskólanemendur. Fámennur skóli borið saman við að algengt er til dæmis á höfuðborgarsvæðinu að nemendur skóla séu 300-400.

Mæli með teymiskennslu

„Fámenni og nálægð í grunnskóla getur bæði verið kostur og áskorun,“ segir Mjöll. „Vissulega er auðveldara að mæta þörfum hvers barns þegar hóparnir eru minni. Undanfarin ár hefur í Þingeyjarskóla verið starfað eftir hugmyndafræði teymiskennslu. Ég mæli svo sannarlega með þeim vinnubrögðum. Ábyrgð á nemendum og verkefnum er sameiginleg. Kennarinn er ekki einyrki í þessu skipulagi og mér finnst þetta styðja við faglega nálgun gagnvart nemendum. Fram undan eru svo breytingar á mínum starfsvettvangi og ég hlakka til að takast á við nýjar áskoranir þótt vissulega muni ég sakna margs.“

Hver er hún?

• Mjöll Matthíasdóttir er frá Akureyri, fædd árið 1965 og lauk kennaranámi árið 1989. Hefur síðan sinnt kennslu við ýmsa skóla á Norður- og Austurlandi. Starfar nú við Þingeyjarskóla í Aðaldal og er umsjónarkennari á yngsta stigi.

• Hefur sinnt fjölmörgum trúnaðarstörfum fyrir stétt sína, m.a. verið verið formaður Bandalags kennara á Norðurlandi eystra frá 2013. Sat í stjórn og samninganefnd Félags grunnskólakennara 2011-2018. Hún var kjörin formaður Félagas grunnskólakennara nú í byrjun maí. Mjöll er virk í starfi kvenfélaga. Hún býr á Grenjaðarstað í Aðaldal, gift séra Þorgrími Gunnari Daníelssyni sóknarpresti og þau eiga tvo uppkomna syni.