Dýr drottning. S-NS
Norður | |
♠-- | |
♥ÁK1053 | |
♦K108 | |
♣ÁK1065 |
Vestur | Austur |
♠KDG5432 | ♠10986 |
♥D8 | ♥942 |
♦543 | ♦962 |
♣3 | ♣874 |
Suður | |
♠Á7 | |
♥G76 | |
♦ÁDG7 | |
♣DG92 |
Suður spilar 7G.
Á fögrum vordegi fyrir margt löngu sátu Kauko Koistinen og Jón Baldursson að spilum á Hótel Loftleiðum, sem þá var – Kauko í kristalssalnum, Jón í kjallaranum, báðir í suður. Og báðir opnuðu á einu grandi.
Þetta var í leik Finna og Íslendinga á Norðurlandamótinu 1988. Vestur hindraði í 3♠, norður sýndi hjarta og láglit með 4♠, austur stökk í 6♠ (!) og þeir Jón og Kauko veltu framhaldinu yfir á makker með kröfupassi. Valur Sigurðsson og Jari Erkillaa sátu við hinn borðsendann og sögðu 7♣ – pass, pass og 7♠ í vestur.
Fram að þessu höfðu sagnir þróast nákvæmlega eins á báðum borðum, en nú skildi leiðir: Finnarnir dobluðu 7♠ og uppskáru 1.700, en Jón lét vaða í 7G, sem unnust þegar drottningin í hjarta skilaði sér í vestur (2.220). Einhver reiknaði út að hjartadrottningin hefði þarna sveiflað 31 impa.