í sundi Ljósmynd eftir Agnieszku Sosnowska á sýningunni Svarthvítt.
í sundi Ljósmynd eftir Agnieszku Sosnowska á sýningunni Svarthvítt.
[ Smellið til að sjá stærri mynd ]
Þrjár sýningar verða opnaðar í Listasafninu á Akureyri í kvöld kl. 20.

Þrjár sýningar verða opnaðar í Listasafninu á Akureyri í kvöld kl. 20. Gústav Geir Bollason opnar sýninguna Sandtímasálmur um fölnandi jarðarblóm , Auður Lóa Guðnadóttir sýninguna Forvera og þriðja sýningin er ljósmyndasamsýningin Svarthvítt sem er á dagskrá Listahátíðar í Reykjavík. Boðið verður upp á listamannaspjall um Svarthvítt kl. 21 í kvöld og mun Hlynur Hallsson, safnstjóri Listasafnsins á Akureyri, stýra því.

Um Svarthvítt segir í tilkynningu að þar megi sjá andstæður og ólíka hluti, viðhorf og sjónarhorn. „Það sem skilur okkur að getur einnig tengt okkur saman,“ segir þar.

Á sýningunni sýna fimm listamenn sem vinna með svarthvítar ljósmyndir. Þeir nálgast viðfangsefni sín með ólíkum hætti og myndefnin eru að sama skapi ólík og margvísleg, m.a. landslag, sögur, staðir og stemning.

Listamennirnir fimm eru Agnieszka Sosnowska, Christopher Taylor, Katrín Elvarsdóttir, Páll Stefánsson og Spessi.

Inn á milli er ekkert

Gústav Geir fæst við teikningar og tilraunakvikmyndir auk skúlptúrverka og segir eftirfarandi um sýningu sína: „Teiknimyndir og lifandi myndir af jurtaleifum, ryki og rusli. Einnig blendingshlutir sem jarðtengjast í hugmynd um mæli- og farartæki, sem og skjól eða holur sem verða til í skemmdu landslagi. Alls staðar er sandurinn, sýnilegur eða ósýnilegur: í steyptum veggjunum, sjóntækjunum, símanum, ruslahaugnum. Hreyfingar blómanna í teiknimyndunum verða flöktandi í hröðuninni. Inn á milli mynda; ekkert. Tóm eða fjarvist, andleg.

Í lifandi vídeómyndum birtast gróðurleifar í uppstillingu er hreyfist mishratt í vélrænni hringrás ljóss og skugga, þar sem allt líður hjá, hraðar og hraðar, og verður ógreinilegra. Hverfulir svipir í hverfandi tíma og rúmi. Samruni einskis og veruleikans. Skúlptúrar sem hluti af innsetningu lýsa kyrrstöðu. Verkin verða hugleiðing um hið sýnilega: hreyfingu, hröðun, tíma og eyðingu.“

Auður Lóa er myndlistarmaður sem leikur sér á landamærum hins huglæga og hlutlæga, höggmynda og teikningar, listar og veruleika, segir í tilkynningu og að hún vinni markvisst með hversdagsfyrirbæri og fígúratíft myndmál sem hún sæki í forna jafnt og nýliðna sögu. „Auður Lóa leitast við að virkja sjálf listaverkin, ætíð þó sem fyrirbæri í sínu eigin félagslega umhverfi. Á sýningunni Forvera heldur hún áfram á þeirri braut. Að þessu sinni eru heimilisbúnaður og skrautmunir frá ýmsum tímapunktum sögunnar í brennidepli,“ segir um myndlistarkonuna.