Guðni Th. Jóhannesson
Guðni Th. Jóhannesson
Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands, fer í opinbera heimsókn í Skaftár-hrepp í dag, fimmtudag.

Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands, fer í opinbera heimsókn í Skaftár-hrepp í dag, fimmtudag.

Í heimsókninni mun Guðni eiga fund með nýkjörinni sveitarstjórn og sækir svo með henni málstofu um sóknarfæri Skaftárhrepps sem haldin verður í Kirkjubæjarstofu – þekkingarsetri. Forseti fer til fundar við eldri kynslóðina í hjúkrunar- og dvalarheimilinu Klausturhólum, og þá yngri bæði í leikskólanum Kærabæ og Kirkjubæjarskóla. Þá heimsækir hann nokkra staði að auki og í kvöld verður hátíðardagskrá í Kirkjuhvoli í boði hreppsins.