Svandís Svavarsdóttir matvælaráðherra afhenti Landgræðsluverðlaunin á ársfundi Landgræðslunnar í Gunnarsholti nýverið.
Verðlaunahafar voru bændurnir á Kaldbaki á Rangárvöllum, þau Sigríður Heiðmundsdóttir og Viðar Steinarsson, og Landvernd.
Bændur á Kaldbaki hlutu verðlaunin fyrir öflugt og árangursríkt uppgræðslu- og landbótastarf á jörð sinni og fleiri svæðum á Rangárvöllum um áratuga skeið.
Landvernd hlaut verðlaunin fyrir öflugt fræðslustarf síðustu árin tengt vernd og endurheimt vistkerfa og sjálfbærri landnýtingu, segir í tilkynningu. Ráðherra afhenti verðlaunahöfum Fjöregg Landgræðslunnar, verðlaunagripi sem unnir eru úr tré í Eik-listiðju á Miðhúsum við Egilsstaði.