París Novak Djokovic og Rafael Nadal takast í hendur í leikslok.
París Novak Djokovic og Rafael Nadal takast í hendur í leikslok. — AFP/Christophe Archambault
Rafael Nadal frá Spáni sigraði Novak Djokovic frá Serbíu, 3:1, í hörkuspennandi og ógnarlöngum leik tveggja af þekktustu tennismönnum síðari tíma í fyrrinótt en þeir mættust þá í átta manna úrslitum Opna franska meistaramótsins í París.
Rafael Nadal frá Spáni sigraði Novak Djokovic frá Serbíu, 3:1, í hörkuspennandi og ógnarlöngum leik tveggja af þekktustu tennismönnum síðari tíma í fyrrinótt en þeir mættust þá í átta manna úrslitum Opna franska meistaramótsins í París. Nadal mætir Alexander Zverev í undanúrslitum. Leiknum lauk ekki fyrr en klukkan að ganga tvö um nóttina að frönskum tíma og kapparnir voru sammála um það á blaðamannafundi í gærmorgun að leikir mótsins hæfust alltof seint á kvöldin.