Óvissa Ekki er ljóst hvað verður um skipin tvö sem ekki eru lengur í notkun.
Óvissa Ekki er ljóst hvað verður um skipin tvö sem ekki eru lengur í notkun. — Morgunblaðið/sisi
Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Varðskipið Týr, sem legið hefur í Gömlu höfninni í Reykjavík síðan það var tekið úr notkun 15. nóvember í fyrra, hefur verið flutt í Sundahöfn.

Sigtryggur Sigtryggsson

sisi@mbl.is

Varðskipið Týr, sem legið hefur í Gömlu höfninni í Reykjavík síðan það var tekið úr notkun 15. nóvember í fyrra, hefur verið flutt í Sundahöfn. Þar liggja þeir samsíða, Týr og Ægir, og bíða örlaga sinna ef svo má taka til orða. Skipin eru komin til ára sinna og eru ekki lengur í þjónustu Landhelgisgæslunnar. Nýrri og fullkomnari skip, Þór og Freyja, hafa tekið við hlutverki þeirra við gæslu landhelginnar.

Ríkiskaup, fyrir hönd Landhelgisgæslunnar, auglýsti skipin til sölu í fyrrahaust. Tvö tilboð bárust í bæði skipin. Það hærra var 125 milljónir en hið lægra 18 milljónir. Í apríl sl. var frá því skýrt að Ríkiskaup hefðu samþykkt kauptilboð frá Íslendingi og verið væri að ganga frá samningum. Síðan kom babb í bátinn. „Kauptilboð sem búið var að samþykkja er niður fallið, þannig að það eru umleitanir í gangi eins og er,“ segir Helena Rós Sigmarsdóttir, lögfræðingur hjá Ríkiskaupum, í skriflegu svari við fyrirspurn blaðsins.

Væntanlegur kaupandi gat ekki staðið við tilboð sitt og eru nú hafnar viðræður við tvo aðila.

Bæði skipin eru smíðuð í Danmörku. Varðskipið Ægir var smíðað í Álaborg 1968 og Týr var smíðaður í Árósum 1975. Ægir fór í sína síðustu löggæslu- og eftirlitsferð um miðin sumarið 2015 og Týr í nóvember í fyrra.

Bæði Ægir og Týr hafa reynst afar vel og léku stórt hlutverk í þorskastríðunum sem Íslendingar háðu við Breta á síðustu öld.