Róbert Rafn Óðinsson fæddist 14. maí 1991. Hann lést 10. maí 2022.

Útför Róberts fór fram 25. maí 2022.

Elsku hjartans Róbert minn.

Minning þín er mér ei gleymd;

mína sál þú gladdir;

innst í hjarta hún er geymd.

þú heilsaðir mér og kvaddir.

(Káinn)

Ég mun sakna hinna hárbeittu, hreinskilnu og skemmtilegu samræðna okkar um hvítlauk, skeggvöxt og bara allt milli himins og jarðar.

Ég mun sakna þess að þú kíkir við til að fá tvöfaldan espressó og óvæntra blómagjafanna.

Ég mun sakna þess að heyra þig kalla mig mömmu.

Ég mun sakna þín.

Anna Björk Eyvindsdóttir tengdamamma.