Vekja eftirtekt Grillið er mikið sjónarspil og gaman er fyrir gesti að grilla saman á því. Grillið fæst í Kokku og kostar 45.900 krónur.
Vekja eftirtekt Grillið er mikið sjónarspil og gaman er fyrir gesti að grilla saman á því. Grillið fæst í Kokku og kostar 45.900 krónur.
[ Smellið til að sjá stærri mynd ]
Við höfum ekki farið leynt með aðdáun okkar á steypujárnsvörunum frá Lodge en í hugum margra er steypujárn það eina sem á að elda á. Nú er komið í sölu hérlendis grill frá fyrirtækinu sem þykir ofursvalt.

Við höfum ekki farið leynt með aðdáun okkar á steypujárnsvörunum frá Lodge en í hugum margra er steypujárn það eina sem á að elda á.

Nú er komið í sölu hérlendis grill frá fyrirtækinu sem þykir ofursvalt. Grillið heitir Sportman's og er fullkomið fyrir snögggrillun á teinum (í Hibachi-stíl) enda býður það upp á alvöru hita. Grillið er ótrúlega fjölhæft og ræður bæði við grænmeti og dýrindis steikur. Grillið smellpassar á útileguborðið og verður miðjupuntkurinn í góðri útimáltíð, nánast eins og þú sért á góðum japönskum eða kóreskum stað þar sem maturinn er eldaður á borðinu. Mikilvægt er þó að passa upp á að undirlagið sé hitaþolið.

Grillið er framleitt í Tennessee í Bandaríkjunum úr smíðajárni og tilbakað með grænmetisolíu. Olían og járnið ganga í bandalag sem ver grillið fyrir ryði og gerir það viðloðunarfrítt. Mikilvægt er að rækta þetta samband og ef til vill strjúka yfir grillið með olíu öðru hvoru til að byggja upp og viðhalda olíuhúðinni. Það er einfalt að fjarlægja grindina ofan á grillinu til að bæta við kolum. Skúffan undir grillinu er færanleg sem gerir þér bæði kleift að stýra loftflæði og þar með hita í kolunum og fjarlægja öskuna á einfaldan hátt þegar partíið er búið.

Með grillinu fylgir sett af gormakrókum úr stáli sem auðvelda meðhöndlun grillsins og það er kannski vert að taka það fram að grillið verður heitt við notkun!