Glasgow Úkraínumenn fagna fyrsta markinu gegn Skotum í gær.
Glasgow Úkraínumenn fagna fyrsta markinu gegn Skotum í gær. — AFP/Andy Buchanan
Úkraína leikur til úrslita gegn Wales á sunnudaginn um síðasta sæti Evrópu á heimsmeistaramóti karla í fótbolta í Katar eftir sigur á Skotum, 3:1, í undanúrslitum umspils undankeppninnar á Hampden Park í Glasgow í gærkvöld.

Andriy Yarmolenko kom Úkraínu yfir á 33. mínútu og Roman Yaremchuk bætti við marki á 49. mínútu, 2:0. Callum McGregor hleypti miklu fjöri í leikinn á 79. mínútu þegar hann svaraði fyrir Skota og minnkaði muninn í 2:1. Í uppbótartímanum slapp Artem Dovbyk einn upp að skoska markinu og innsiglaði úkraínskan sigur, 3:1.