Sigmar Vilhjálmsson
Sigmar Vilhjálmsson
Eftir Sigmar Vilhjálmsson: "Það þarf ekki stærðfræðing til að reikna út að starfsmenn í aukavinnu, t.d. með námi, þurfa færri tíma til að ná sömu launum og launamenn sem vinna 100% dagvinnu."

Jafnræði er mikilvægt meðal launamanna á Íslandi og ekki síður fyrir fyrirtækin í landinu. Hlutastarfsmenn í mörgum fyrirtækjum fá oft hærri laun fyrir færri tíma vegna 33% álags á kvöldin og 45% álags um helgar. Það er óréttlátt gagnvart þeim launamönnum sem geta ekki unnið um kvöld og helgar. Fjölskyldufólk er í miklum meirihluta launamanna sem eiga erfiðara með að vinna kvöld og helgarvinnu. Þeim er mismunað vegna þessa kerfis. Álagið leggst ofan á dagvinnutaxtann sem viðkomandi er með. Það þarf ekki stærðfræðing til að reikna út að starfsmenn í aukavinnu, t.d. með námi, þurfa færri tíma til að ná sömu launum og launamenn sem vinna 100% dagvinnu. Það er ekki jafnræði.

Færst hefur í vöxt að einstaklingar vilji frekar vinna seinniparts-, kvöld- og helgarvinnu í stað dagvinnu. Því ættu þeir launamenn að fá hærri laun en þeir sem leysa sömu verk af hendi á daginn? Það er ekki jafnræði, sérstaklega ef það er val viðkomandi launamanns að vinna á kvöldin og um helgar.

Atvinnulífið hefur breyst mikið á síðustu árum, m.a. með auknum umsvifum í ferðaþjónustu. Ferðaþjónustan sefur aldrei. Það er því alveg kominn tími til að endurskoða nálgun á þetta launakerfi.

Með því að horfa á vaktir, óháð tíma, óháð virkum dögum eða helgum, væri hægt að leggja áherslu á dagvinnutaxta og um leið einfalda alla umræðu í kjarasamningum. Hægt væri að segja að fyrstu 8 tímar á vakt, óháð tíma væru á dagvinnutaxta, sem væri því kallaður einfaldlega grunntaxti . Undanskildir væru helgidagar (rauðir dagar) og næturvinna.

Með þessari hugmynd væri hægt að jafna stöðu launamanna innan sama fyrirtækis. Þessi leið myndi sporna gegn verðhækkunum á vörum og þjónustu fyrir viðskiptavini og gera Ísland samkeppnishæfara í ferðaþjónustu.

Þessi hugmynd myndi breyta mjög miklu fyrir L&M stór fyrirtæki á Íslandi sem keppast um það ekki síst að veita góða þjónustu. Enda þjónustustig L&M stórra fyrirtækja töluvert hærra en hjá opinberum fyrirtækjum og hjá stórfyrirtækjum.

Þessi hugmynd jafnar stöðu launamanna sem ætti að vera keppikefli verkalýðshreyfingarinnar.

Það er alveg kominn tími til að kjarasamningar miðist við þarfir lítilla og meðalstórra fyrirtækja, enda er þar um að ræða 70% af launþegum og 99% allra fyrirtækja hér á landi. Það er alveg kominn tími til að lítil og meðalstór fyrirtæki fái sæti við kjarasamningsborðið og að kjarasamningar taki mið af veruleika atvinnulífsins.

Til eigenda fyrirtækja: Öllum fyrirtækjum sem eru ekki skráð í neitt félag ber, samkvæmt lögum, að fylgja þeim kjarasamningum sem Samtök atvinnulífsins gera, þótt fyrirtækið þitt sé ekki skráð í neitt félag. Það er því mikilvægt að skrá fyrirtækið í Atvinnufjelagið strax, til að ná fram breytingum, á www.afj.is

Höfundur er formaður Atvinnufjelagsins.