50 ára Sif er Reykvíkingur og ólst að mestu upp í Hlíðunum og Vesturbænum, en býr í Safamýri. Hún er með BA-gráðu í þýsku og kvikmyndafræði frá HÍ. Hún hefur starfað sem flugfreyja hjá Icelandair frá 1998.
50 ára Sif er Reykvíkingur og ólst að mestu upp í Hlíðunum og Vesturbænum, en býr í Safamýri. Hún er með BA-gráðu í þýsku og kvikmyndafræði frá HÍ. Hún hefur starfað sem flugfreyja hjá Icelandair frá 1998. „Áhugamál mín eru útivist og golf meðal annars. Ég hef líka gaman af að ferðast innanlands sem utan.“

Fjölskylda Maki Sifjar er Guðmundur Hrafn Pálsson, f. 1970, framkvæmdastjóri auglýsingastofunnar Pipar/TBWA. Sonur Sifjar er Hilmar Þorgnýr Hákonarson, f. 2005. Stjúpbörn hennar eru Fannar Daníel, f. 1993, Sara Ísabella, f. 1999, og Aron Örn, f. 2006. Foreldrar Sifjar eru Katrín Gísladóttir, f. 1949, myndmenntakennari, og Hilmar Þorgnýr Helgason, f. 1947, d. 2001, auglýsingateiknari. Stjúpfaðir Sifjar er Árni Erlendur Stefánsson, f. 1949, viðskiptafræðingur.