EM á Madeira. V-Allir
Norður | |
♠3 | |
♥KDG8 | |
♦963 | |
♣K10843 |
Vestur | Austur |
♠ÁG98642 | ♠105 |
♥65 | ♥Á9743 |
♦KD | ♦542 |
♣D7 | ♣962 |
Suður | |
♠KD7 | |
♥102 | |
♦ÁG1087 | |
♣ÁG6 |
Suður spilar 3G.
Evrópumót hófst á portúgölsku eyjunni Madeira í gær – hið 55. í röðinni. Fyrsta Evrópumótið var haldið í Scheveningen í Hollandi 1932 og síðast var spilað í Ostend í Belgíu 2018. Í seinni tíð hafa mótin farið fram á tveggja ára fresti, en vegna kóvíd hefur biðin orðin fjögur ár í þetta sinn. Keppt verður í þremur flokkum á Madeira (opnum flokki, kvennaflokki og flokki eldri spilara) og sendir Ísland lið í alla flokka.
Norðmenn unnu í Belgíu 2018 og er spilið að ofan frá leik þeirra við Ítalíu. Boye Brogeland opnaði í vestur á 1♠ – pass, pass og dobl hjá Antonio Sementa í suður. Norberto Bocchi sagði 2♣, Sementa 2G, Bocchi 3♥ og Sementa 3G. Smár spaði út dugir vörninni af því makker á spaðatíu, en Boye valdi gosann! Hafði í huga möguleikann á blankri tíu í blindum. Espen Lindqvist í austur afblokkeraði, Sementa drap og spilaði hjarta. Þrír niður.