Inga Sæland: "Að ferðast um fallega landið sitt, fylla lungun af hreinu tæru sjávarlofti og geta hlaupið út um allar koppagrundir óhindruð og frjáls er ekki sjálfsagt og ekki öllum gefið."

Að ferðast um fallega landið sitt, fylla lungun af hreinu tæru sjávarlofti og geta hlaupið út um allar koppagrundir óhindruð og frjáls er ekki sjálfsagt og ekki öllum gefið. Þúsundir og aftur þúsundir samlanda okkar búa við skerta heilsu, vanlíðan og fátækt. Sjálf hef ég glímt við heilsubrest, fötlun og fátækt og á því auðvelt með að setja mig í spor þeirra sem þannig er ástatt um, m.ö.o. ég veit um hvað ég er að tala. Það er vegna þessa sem Flokkur fólksins varð til og hefur, svo ekki verður á móti mælt, barist af öllum mætti fyrir auknu réttlæti og útrýmingu fátæktar.

Þegar vanmátturinn og vonleysið tekur mann kverkataki er ekkert dýrmætara en að fá hjálp. En hver á að hjálpa? Liggur það ekki í augum uppi að við gerum þær kröfur til okkar siðmenntaða samfélags að það taki utan um alla þá sem eiga bágt og þurfa á hjálp að halda? Hvaða guðlegi máttur ætli stjórni því að fátækt barna á Íslandi hefur vaxið stig af stigi, að gjáin milli þeirra ríku og fátæku gliðnar stöðugt? Nei, það er rétt hjá þér. Það er enginn guðlegur máttur þar að baki, einungis vanhæf ríkisstjórn sem hugsar ekki um neitt nema eigið skinn, ráðherrastólana undir boruna á sér og hagsmunagæslu vildarvina. Þetta er mannanna verk!

Hæstvirtur forsætisráðherra segir kinnroðalaust að það að láta fátækt fólk bíða eftir réttlætinu sé það sama og að neita því um réttlæti. Er furða þótt okkar minnstu bræður og systur spyrji sig að því hvernig það sé mögulegt að þessi sami einstaklingur, s.s hæstvirtur forsætisráðherra, sé æðstur allra ráðherra en á sama tíma skuli hún samþykkja að fátækir ekki einungis bíði eftir réttlætinu heldur séu skattlagðir í sárri fátækt og allt að 130% af framfærslu þeirra fari í að greiða húsaleigu! Það er m.a. vegna þess hvernig græðgisvædd leigufélög hafa fengið heimild til þess að níðast á þeim sem ekki eru taldir bærir til að fara í greiðslumat og kaupa sína eigin íbúð.

Því miður hefur komið á daginn að það er holur hljómur í fagurgala hæstvirts ráðherra þegar á reynir um efndir. Hvers vegna beitir hún sér ekki fyrir réttlætinu nú þegar hún á þess kost? Hvers vegna er haldið áfram að níðast á þeim sem síst skyldi? Ég á engin svör, því miður.

Ég sakna þess að hafa ekki haft heilsu til að sinna þingstörfum mínum nú um sinn en ég heiti því að koma margefld til baka í haust. Rödd Flokks fólksins mun hljóma sem aldrei fyrr!

Höfundur er þingmaður og formaður Flokks fólksins.

Höf.: Inga Sæland