Ráðstefna Dagur var að kvöldi kominn þegar ljósmyndara Morgunblaðsins bar að garði í Hörpu.
Ráðstefna Dagur var að kvöldi kominn þegar ljósmyndara Morgunblaðsins bar að garði í Hörpu. Yfir daginn er líflegra um að litast í ráðstefnusölum hússins en um helgina lauk þar heimsþingi Retina International og fór Norræna augnlæknaþingið fram samhliða því. Nóg verður um að vera í Hörpu í sumar: Upplifunarsýning, tónleikar og leiksýningar svo fátt eitt sé nefnt.