Davíð Stefán Guðmundsson
Davíð Stefán Guðmundsson
Eftir Davíð Stefán Guðmundsson: "Sumartíminn reynist Blóðbankanum erfiður. Það er því starfseminni dýrmætt þegar blóðgjafar muna eftir að gefa blóð áður en haldið er í fríið."

Alþjóðlegi blóðgjafadagurinn er haldinn hátíðlegur 14. júní ár hvert. Dagurinn er haldinn til heiðurs blóðgjöfum um heim allan, sem gefa af óeigingirni blóð og blóðhluta sem síðan er gefið til sjúkra. Mikil þörf er á að fjölga blóðgjöfum. Því er tilvalið að nýta þennan hátíðisdag til að ganga í hóp vaskrar sveitar blóðgjafa, sem tryggja samfélaginu dýrmætt framboð af blóði og blóðhlutum. Án framlags okkar góðu blóðgjafa yrði erfitt, jafnvel ómögulegt að framkvæma skurðaðgerðir og aðstoða einstaklinga í gegnum erfið veikindi.

Sumartíminn reynist starfsemi Blóðbankans gjarnan erfiður, þar sem ferðalög eru tíðari og blóðgjafar síður heima við en annars. Það er því starfseminni dýrmætt þegar blóðgjafar muna eftir að gefa blóð áður en haldið er í fríið, því Blóðbankinn þarf 70 blóðgjafa á dag, allan ársins hring. Þessu til viðbótar má nefna að á Íslandi eru virkir blóðgjafar um 2.000 færri en þeir þurfa að vera. Þessu til viðbótar hætta um 2.000 gjafar á hverju ári að gefa blóð, sökum aldurs eða annarra orsaka. Heildarþörf Blóðbankans fyrir nýliðun í blóðgjafahópnum er því um 4.000 blóðgjafar á ári.

Ég vil sérstaklega hvetja konur til að gerast blóðgjafar en Ísland er sér á báti þegar kemur að fæð kvenna í hópi blóðgjafa. Af heildarmagni heilblóðs á Íslandi á um 27% uppruna sinn hjá konum en til samanburðar á 44% af heilblóði uppruna sinn hjá konum í Svíþjóð. Heildarfjöldi blóðgjafa í dag er um 6.000, en aðeins 2.000 úr þessum hópi eru konur. Blóðgjafafélag Íslands vill beita sér fyrir því að fjölga konum í hópi blóðgjafa, helst þannig að konur sem gefa blóð verði jafnmargar körlum.

Sökum ástandsins í samfélaginu og framkvæmda við Snorrabraut verður ekki slegið upp garðveislu að Snorrabraut í tilefni dagsins, en blóðgjafar og sér í lagi þau sem hafa áhuga á að gerast blóðgjafar, eru hvött til að mæta í Blóðbankann að Snorrabraut 60 eða á 2. hæðina áGlerártorgi Akureyri og láta gott af sér leiða. Boðið er upp á sérstaklega góðar veitingar í tilefni dagsins. Best er að panta tíma í blóðgjöf með því að hringja í síma 543 5500 (Reykjavík) eða 543 5560 (Akureyri). Einnig er hægt að bóka tíma á www.blodbankinn.is. Dagurinn 14. júní var valinn, þar sem það er afmælisdagur nóbelverðlaunahafans Karl Landsteiner en hann uppgötvaði ABO-blóðflokkakerfið árið 1900. Að alþjóðlega blóðgjafadeginum standa WHO, Alþjóða Rauði krossinn, Alþjóðasamtök blóðgjafafélaga og Alþjóðasamtök blóðgjafar. Að baki þessara samtaka eru 192 aðildarríki Alþjóðaheilbrigðisstofnunarinnar, 181 landssamtök Rauða krossins, 50 landssamtök blóðgjafafélaga og þúsundir sérfræðinga um blóðgjafir.

Áhugasamir um blóðgjafir og starfsemi BGFÍ geta gerst meðlimir félagsins á heimasíðu félagsins, www.bgfi.is

Höfundur er formaður Blóðgjafafélags Íslands.