Fögnuður Frá samkomunni í húsnæði félagsins Íslenskrar grafíkur í Hafnarhúsinu í gær.
Fögnuður Frá samkomunni í húsnæði félagsins Íslenskrar grafíkur í Hafnarhúsinu í gær. — Morgunblaðið/Eggert
Metnaðarfullt menningarverkefni var kynnt í gær í húsnæði félagsins Íslenskrar grafíkur í Hafnarhúsi, verkefni sem brátt hefur göngu sína í samstarfi menningar- og viðskiptaráðuneytisins og sænska sendiráðsins og tengist rannsóknarferð Daniels Solanders...

Metnaðarfullt menningarverkefni var kynnt í gær í húsnæði félagsins Íslenskrar grafíkur í Hafnarhúsi, verkefni sem brátt hefur göngu sína í samstarfi menningar- og viðskiptaráðuneytisins og sænska sendiráðsins og tengist rannsóknarferð Daniels Solanders til Íslands. Verkefnið mun standa yfir í tvö ár með þátttöku um 30 íslenskra samstarfsaðila, að því er fram kemur í tilkynningu frá menningar- og viðskiptaráðuneytinu.

Verður sýningin Solander 250 – bréf frá Íslandi sýnd á ellefu stöðum á landinu en tíu íslenskir myndlistarmenn koma að henni og voru þeir viðstaddir í gær ásamt Lilju Alfreðsdóttur, menningar- og viðskiptaráðherra og Pär Ahlberger, sendiherra Svíþjóðar á Íslandi.

Segir í tilkynningu að tilefnið hafi verið að fagna þessum áfanga og að samstarfsverkefnið sé með þeim umfangsmeiri á sviði menningar sem erlent sendiráð hafi staðið að í samstarfi við íslensk stjórnvöld.

Bók sem hafði mikil áhrif

Um menningarverkefnið segir m.a. að Englendingurinn Joseph Banks hafi leitt vísindaleiðangur til Íslands árið 1772 og að með honum í för hafi verið náttúrufræðingurinn sænski Daniel Solander. Með í leiðangrinum hafi verið Uno von Troil sem síðar hafi orðið erkibiskup í Uppsölum og skrifaði hann bók um ferðina, Bref rörande en resa till Island eða Bréf frá Íslandi , sem var gefin út árið 1777. Lýsing hans á Íslandi er sögð hafa haft mikil áhrif í Evrópu 18. aldar og vakið áhuga nágranna okkar á landi og þjóð.

„Áhrifa leiðangursins varð ekki síst vart í Svíþjóð, þar sem Bréf frá Ísland i átti þátt í að skapa tilfinningu fyrir djúpum tengslum þjóðanna, í gegnum tungumál, sögu og menningu,“ segir m.a. í tilkynningu og að í samstarfi við menningar- og viðskiptaráðuneytið muni sænska sendiráðið standa fyrir mikilli dagskrá tengdri rannsóknarferð Solanders sem muni standa yfir í tvö ár með þátttöku um 30 íslenskra samstarfsaðila.

„Þema verkefnisins er Solander 250 – Bréf frá Íslandi. Tímamótaárið einkennist af nánu samtali lista og vísinda. Það er þvermenningarlegt og opnar á samtal milli norðurskauts- og Kyrrahafssvæðisins og innan Norðurlanda. Tímamótaárið lítur jafnframt fram á við, inn í sameiginlega framtíð okkar. Verkefnið snýst um samtal vinaþjóðanna Íslands og Svíþjóðar um sameiginlega sögu, sem og loftslag, náttúru og menningu í fortíð, nútíð og framtíð,“ segir í tilkynningu og að einstök listasýning sé hornsteinn tímamótaársins. Í samstarfi við Íslenska grafík hafi tíu íslenskum listamönnum verið boðið að hugleiða Ísland, Solander og leiðangurinn árið 1772.

„Einstakur viðburður“

Listamennirnir sem taka þátt í verkefninu eru Anna Líndal, Aðalheiður Valgeirsdóttir, Daði Guðbjörnsson, Gíslína Dögg Bjarkadóttir, Guðmundur Ármann Sigurjónsson, Iréne Jensen, Laura Valentino, Soffía Sæmundsdóttir, Valgerður Björnsdóttir og Viktor Hannesson. Tíu grafíklistaverk þeirra munu mynda sýningu sem heitir Solander 250: Bréf frá Íslandi . Verður hún á ellefu stöðum víða um Ísland ásamt sýningunni Paradise Lost – Daniel Solander's Legacy sem samanstendur af verkum eftir tíu listamenn frá Kyrrahafssvæðinu sem áður hafa verið sýnd á Nýja-Sjálandi, Ástralíu og Svíþjóð.

„Þetta er einstakur viðburður, samtal í gegnum list milli norðurslóða og Kyrrahafs, hér á Íslandi. Vonast er einnig til þess að þetta veki áhuga meðal hinna fjölmörgu erlendu gesta Íslands. Auk þess er ætlunin, með öllu verkefninu árin 2022 og 2023, að vekja áhuga og forvitni barna á náttúruvísindum og stórkostlegri flóru Íslands,“ segir að lokum í tilkynningu.