Liverpool Darwin Núnez er á leiðinni til Englands í sumar.
Liverpool Darwin Núnez er á leiðinni til Englands í sumar. — AFP/Patricia De Melo Moreira
Portúgalska knattspyrnufélagið Benfica staðfesti í gær að samið hefði verið við Liverpool sem kaupir framherjann Darwin Núnez fyrir 64 milljónir punda. Samkvæmt enskum fjölmiðlum hefur hann þegar samið við Liverpool til sex ára.
Portúgalska knattspyrnufélagið Benfica staðfesti í gær að samið hefði verið við Liverpool sem kaupir framherjann Darwin Núnez fyrir 64 milljónir punda. Samkvæmt enskum fjölmiðlum hefur hann þegar samið við Liverpool til sex ára. Núnez er 22 ára gamall Úrúgvæi og skoraði 34 mörk í 41 mótsleik fyrir Benfica á nýliðnu tímabili. Tvö gegn Liverpool í Meistaradeildinni og alls sex í keppninni. Þá hefur Núnez skoraði tvö mörk í fyrstu ellefu landsleikjum sínum fyrir Úrúgvæ.