Reyndur Ólafur Guðmundsson hefur leikið 137 landsleiki.
Reyndur Ólafur Guðmundsson hefur leikið 137 landsleiki. — Ljósmynd/Szilvia Micheller
Ólafur Andrés Guðmundsson landsliðsmaður í handknattleik er á förum frá Montpellier í Frakklandi eftir aðeins eitt tímabil með liðinu.
Ólafur Andrés Guðmundsson landsliðsmaður í handknattleik er á förum frá Montpellier í Frakklandi eftir aðeins eitt tímabil með liðinu. Ólafur kom þangað frá Kristianstad í Svíþjóð síðasta sumar en missti mikið úr vegna meiðsla og lék ekkert með liðinu á seinni hluta tímabilsins, eftir að hafa leikið með íslenska landsliðinu á EM í Ungverjalandi í janúar. Ólafur hefur verið orðaður við Kolstad í Noregi en þangað fara bæði Janus Daði Smárason og Sigvaldi Björn Guðjónsson fyrir næsta tímabil.