50 ára Egill ólst upp í Reykjavík en býr á Djúpavogi. Hann er húsasmíðameistari og eigandi Samsteypufélagsins.
50 ára Egill ólst upp í Reykjavík en býr á Djúpavogi. Hann er húsasmíðameistari og eigandi Samsteypufélagsins. „Mér finnst gaman að ferðast með fjölskyldunni þegar ég á lausan tíma úr vinnunni, sem er sorglega sjaldan,“ segir Egill um áhugamálin.

Fjölskylda Eiginkona Egils er Þórdís Sigurðardóttir, f. 1977, leikskólakennari á Djúpavogi. Börn þeirra eru Bjartur Elí, f. 1997, Askur, f. 2003, Sigurður Atli, f. 2007, og Heiðdís Lóa, f. 2008. Foreldrar Egils voru Egill Árnason, f. 1939, d. 2016, húsasmíðameistari, og Guðmunda Marsibil Magnúsdóttir, f. 1944, d. 2019, húsmóðir. Þau voru búsett í Reykjavík.