Uppruni
Víðir Sigurðsson
vs@mbl.is
Liðin tólf sem skipa Bestu deild karla í fótbolta árið 2022 notuðu 244 leikmenn í fyrstu átta umferðum Íslandsmótsins. Þar af fékk 201 leikmaður að spila einn eða fleiri leiki í byrjunarliði en 43 komu við sögu sem varamenn í einum eða fleiri leikjum.
Af þessum 244 leikmönnum voru 90 uppaldir hjá viðkomandi félagi. Af þeim fengu 68 tækifæri í byrjunarliði uppeldisfélagsins í fyrstu átta umferðunum en 22 komu aðeins við sögu sem varamenn.
*Breiðablik hefur alið upp flesta leikmenn sem spila í deildinni. Tólf sem léku með toppliði deildarinnar í átta fyrstu umferðunum, þar af sjö sem fengu tækifæri í byrjunarliðinu, og samtals eru 27 leikmenn í deildinni uppaldir hjá Kópavogsfélaginu. Breiðablik á leikmenn í ellefu af tólf liðum deildarinnar, öllum nema ÍBV. Nítján uppaldir Blikar fengu tækifæri í byrjunarliðum í deildinni og hinir átta komu inn á sem varamenn.
*ÍBV er hins vegar það lið sem notaði flesta uppalda leikmenn í byrjunarliði í átta fyrstu umferðunum. Níu Eyjamenn fengu tækifæri til að hefja leik í deildinni og tveir til viðbótar sem varamenn.
*Stjarnan kemur næst á eftir Breiðabliki í fjölda leikmanna í deildinni en 18 leikmenn sem ólust upp í Stjörnunni komu við sögu í fyrstu átta umferðunum, fimmtán þeirra í byrjunarliðum. Af þessum átján leika sjö með Stjörnunni og þeir léku allir meira og minna í byrjunarliði Garðbæinga.
*Valur notaði fæsta uppalda leikmenn í fyrstu átta umferðunum. Birkir Már Sævarsson var sá eini sem var teflt fram í byrjunarliðinu en síðan komu tveir ungir strákar við sögu sem varamenn, í einum leik hvor.
*FH notaði næstfæsta uppalda leikmenn í byrjunarliði í fyrstu átta umferðunum, aðeins þrjá, en fjórir uppaldir FH-ingar komu hinsvegar við sögu sem varamenn með liðinu.
*Flestir erlendir leikmenn í deildinni koma frá Danmörku en 12 Danir léku í fyrstu átta umferðunum. Danir eiga fleiri leikmenn í deildinni en sjö íslensku félaganna. Svíar eru næstflestir, fimm talsins.
*Fjölnir og Völsungur eru þau félög utan Bestu deildar sem eiga flesta leikmenn í deildinni. Fimm leikmenn uppaldir hjá hvoru félaginu fyrir sig spiluðu í fyrstu átta umferðunum, allir meira og minna í byrjunarliðum.
Hér fyrir ofan má sjá nákvæma skiptingu á hver uppruni leikmanna er í hverju félagi fyrir sig. Viðmiðið er hvar leikmaðurinn lék í 3. flokki, þ.e. á aldrinum 15-16 ára, en í nokkrum tilfellum léku þeir með tveimur félögum á þeim aldri og þar var hver leikmaður metinn fyrir sig.