James gamli Nesbitt fær á baukinn.
James gamli Nesbitt fær á baukinn.
Lúinn Norður-írski leikarinn James Nesbitt fær frekar kaldar kveðjur frá gagnrýnanda breska blaðsins Independent vegna frammistöðu sinnar í nýjum lögguþætti, Suspect.
Lúinn Norður-írski leikarinn James Nesbitt fær frekar kaldar kveðjur frá gagnrýnanda breska blaðsins Independent vegna frammistöðu sinnar í nýjum lögguþætti, Suspect. „Frá Babylon og Bloodlands til Stay Close og nú Suspect (eftir lítið hliðarspor í Line of Duty), hefur Nesbitt verið uppáhalds hrygga löggan í sjónvarpi. Persónur hans eru allt menn á ystu nöf, hafa allt of mikið að gera, niðurníddir, úrvinda – og það er erfitt að finnast ekki það sama um Nesbitt sjálfan,“ skrifar gagnrýnandinn og gefur Suspect ekki nema tvær stjörnur af fimm mögulegum. Í þáttunum rannsakar persóna Nesbitts morðið á dóttur sinni sem hann hefur ekki séð lengi.