Undirbúningur Nýja sanddæluskipið fékk skverun í slippnum í Reykjavík til undirbúnings fyrir komandi verkefni.
Undirbúningur Nýja sanddæluskipið fékk skverun í slippnum í Reykjavík til undirbúnings fyrir komandi verkefni. — Morgunblaðið/Sisi
[ Smellið til að sjá stærri mynd ]
Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Starfsmenn Björgunar eru að gera nýja sanddæluskipið klárt fyrir fyrstu verkefni þess hér á landi. Skipið fór í slipp í Reykjavík og nú er verið að vinna nauðsynlega pappírsvinnu til að fá það skráð á íslenska skipaskrá.

Helgi Bjarnason

helgi@mbl.is

Starfsmenn Björgunar eru að gera nýja sanddæluskipið klárt fyrir fyrstu verkefni þess hér á landi. Skipið fór í slipp í Reykjavík og nú er verið að vinna nauðsynlega pappírsvinnu til að fá það skráð á íslenska skipaskrá.

Sanddæluskipið var keypt frá Spáni fyrr í sumar og hét þá Gigante. Það hefur nú fengið nafnið Álfsnes. Var nafnið valið eftir tilnefningar frá starfsfólki en það hefur skírskotun til nýrrar starfsstöðvar Björgunar sem verður í Álfsnesvík.

Ísafjörður eða Akureyri

Spurður um fyrstu verkefni Álfsness segir Eysteinn Jóhann Dofrason, framkvæmdastjóri Björgunar, að þau verði annaðhvort á Höfn í Hornafirði, Akureyri eða Ísafirði. Það fari eftir því hvenær skipið verði tilbúið til verka en hann vonast til að það verði ekki mikið meira en hálfur mánuður í það. Eftir er að ljúka fyllingarverkefni á Akureyri og fyrir dyrum stendur stórt dýpkunarverkefni á Ísafirði. Þá var Björgun með lægasta tilboð í dýpkun Grynnslanna fyrir utan Hornafjarðarós. Að auki eru föst verkefni eins og dæling fyrir Kalkþörungaverksmiðjuna á Bíldudal og gripið í dælingu við nýja lóð Björgunar í Álfsnesvík. Loks má nefna að viðhaldsdýpkun í Landeyjahöfn er í útboðsferli. Þar eru gerðar kröfur um öflugt skip sem Álfsnes ætti að standa undir.

Telur Eysteinn hugsanlegt að nýja skipið dæli upp undir milljón rúmmetrum af efni fram til áramóta.

Dísa verður seld úr landi

Álfsnes leysir sanddæluskipið Dísu af hólmi og er mun öflugra skip og fjölhæfara. Eysteinn hefur trú á því að það reynist vel við aðstæður hér á landi. Verður reynslan sem fæst fram til áramóta notuð til að meta hvort ástæða sé til að laga það enn betur að aðstæðum hér.

Dísa lauk sínu síðasta verkefni í Arnarfirði fyrir sjómannadag og er nú komin í söluferli. Telur Eysteinn að hún geti nýst áfram, einhvers staðar í öðrum löndum.

Áhöfnin færðist yfir á Álfsnes og er að læra inn á skipið og búa það undir verkefni sín.