Rangt nafn söngkonu Í myndasyrpu sem birtist í blaðinu 23.

Rangt nafn söngkonu

Í myndasyrpu sem birtist í blaðinu 23. júní frá uppskeruhátíð Hitakassans í Iðnó, þar sem fram komu hljómsveitir og tónlistarmenn sem komust í úrslit Músíktilrauna í ár, stóð að söngkona með hljómsveitinni Bí Bí og Joð héti Svanhildur Guðný Hjördísardóttir. Hið rétta er að með sveitinni söng Lára Ruth Clausen og einnig Fannar Árni Ágústsson.