Selena Gomez er grunuð um morð.
Selena Gomez er grunuð um morð. — AFP/Michael Tran
Morð Önnur sería myndaflokksins Only Murders in the Building verður frumsýnd á efnisveitunni Hulu 28. júní.
Morð Önnur sería myndaflokksins Only Murders in the Building verður frumsýnd á efnisveitunni Hulu 28. júní. Selena Gomez, Steve Martin og Martin Short eru sem fyrr í aðalhlutverkum kynlegs þríeykis, sem heldur úti vinsælu hlaðvarpi um sönn sakamál og rannsakar morð í hjáverkum. Að þessu sinni liggja þau sjálf undir grun. Cara Delevingne er einnig í stóru hlutverki í þáttaröðinni og Shirley MacLaine og Amy Schumer bregður fyrir í gestahlutverkum.