Derby Wayne Rooney hefur ákveðið að láta staðar numið hjá Derby.
Derby Wayne Rooney hefur ákveðið að láta staðar numið hjá Derby. — AFP/Daniel Leal
Wayne Rooney hefur sagt starfi sínu sem knattspyrnustjóri enska C-deildarliðsins Derby County lausu. Rooney átti eitt ár eftir af samningi sínum en hefur ákveðið að yfirgefa félagið tafarlaust.

Wayne Rooney hefur sagt starfi sínu sem knattspyrnustjóri enska C-deildarliðsins Derby County lausu. Rooney átti eitt ár eftir af samningi sínum en hefur ákveðið að yfirgefa félagið tafarlaust.

Derby hefur verið í greiðslustöðvun frá því í september á síðasta ári og hefur átt í miklum erfiðleikum með að finna nýja eigendur. Vegna greiðslustöðvunarinnar var 21 stig tekið af liðinu í ensku B-deildinni, sem varð að lokum til þess að það féll niður í C-deild.