Myndlistarmaðurinn Stefán Jónsson opnar sýningu í dag í Pálshúsi á Ólafsfirði. Stefán stundaði myndlistarnám í Myndlista- og handíðaskóla Íslands og School of Visual Arts í New York, þaðan sem hann útskrifaðist með MFA-gráðu árið 1994.
Á myndlistarsýningunni, sem ber titilinn Það kalla ég rart , sýnir Stefán um 50 myndir og 15 bómullarboli sem hann hefur búið til á síðastliðnum 15 mánuðum. Öll verkin sýna fugla sem eru algengir í íslenskri náttúru. Verkin voru unnin út frá ljósmyndum sem skornar eru í vínylfilmu og límdar á tréplötur eða pressaðar á pappír eða bómullarboli.
Titill sýningarinnar er fenginn úr Íslandsklukkunni eftir Halldór Laxness og lýsir viðbrögðum Jóns Guðmundssonar Grindvíkings þegar Jón Hreggviðsson tjáir honum að sést hafi fuglar í loftinu á Íslandi. Sýningin stendur til 25. júlí.