Magnea Tómasdóttir
Magnea Tómasdóttir
Magnea Tómasdóttir, Kjartan Guðnason og Kjartan Valdemarsson flytja sönglög á stofutónleikum Gljúfrasteins á morgun, 26. júní, kl. 16.

Magnea Tómasdóttir, Kjartan Guðnason og Kjartan Valdemarsson flytja sönglög á stofutónleikum Gljúfrasteins á morgun, 26. júní, kl. 16. Á efnisskrá verða sönglög eftir Atla Heimi Sveinsson og Jón Ásgeirsson við texta Halldórs Laxness og Jónasar Hallgrímssonar. Aðgangseyrir er kr. 3.500 og fer miðasala fram í móttöku safnsins fyrir tónleika.

Stofutónleikar verða haldnir á Gljúfrasteini alla sunnudaga kl. 16 í sumar. Þeir hafa verið fastur liður í safninu allt frá árinu 2006. Í tíð Halldórs og eiginkonu hans, Auðar, voru reglulega haldnir tónleikar í stofunni þar sem innlent og erlent tónlistarfólk kom fram.