Eitrað Sviss. V-AV
Norður | |
♠ÁD5 | |
♥83 | |
♦ÁD5 | |
♣KDG92 |
Vestur | Austur |
♠K63 | ♠108 |
♥ÁDG65 | ♥1072 |
♦G862 | ♦1094 |
♣4 | ♣Á8765 |
Suður | |
♠G9742 | |
♥K94 | |
♦K73 | |
♣103 |
Suður spilar 4♠.
Hollendingar eru Evrópumeistarar í opnum flokki. Þeir tóku forystuna þegar þriðjungur var liðinn af mótinu og héldu henni sleitulaust til loka. Litlu munaði þó undir lokin að heimsmeistarar Sviss næðu í skottið á þeim en þessar tvær þjóðir voru langefstar. Spil dagsins er frá innbyrðisleik toppþjóðanna, 4♠ á báðum borðum eftir opnun vesturs á 1♥ og opnunardobl í norður. Sama útspil: lauffjarki.
Þar sem Hollendingar voru í vörninni tók Joris van Lankveld á ♣Á og spilaði strax laufi til baka. Það dugði aðeins í þrjá slagi. Á hinu borðinu skipti Sjoert Brink yfir í ♥10 í öðrum slag! Eitrað sviss, sem sagnhafi á ekkert svar við. Ef hann leggur kónginn á tíuna, spilar vestur þrisvar hjarta og tryggir sér trompslag. Og ef vestur dúkkar – eins og Ricco van Prooijen gerði í raun – skiptir austur aftur yfir í lauf og gefur makker stungu.