Madonna er fyrirmynd.
Madonna er fyrirmynd.
Sky Ferreira komst ung í návígi við ofurfrægð en amma hennar, sem ól hana að stórum hluta upp, var hárgreiðslukona Michaels heitins Jacksons.

Sky Ferreira komst ung í návígi við ofurfrægð en amma hennar, sem ól hana að stórum hluta upp, var hárgreiðslukona Michaels heitins Jacksons. Hann mun einmitt hafa hvatt ömmuna til að setja telpuna í tónlistarnám og sú gamla fór þráðbeint með hana í óperuskóla. Æska Ferreira var enginn dans á rósum en hún kveðst í tvígang hafa verið misnotuð kynferðislega; fyrst af nágranna sínum og síðan af bláókunnugum manni, sem braust inn á heimili hennar.

Stærsta fyrirmynd Ferreira er þó ekki Michael Jackson, heldur Madonna, sem hún hefur leynt og ljóst reynt að líkjast, innan sviðs sem utan. Í Guardian-viðtalinu segir hún það hafa verið stærstu stundina á ferlinum þegar hún hitti Madonnu og fékk að taka lagið Like a Virgin með henni, í nýlegum áheyrnarprufum vegna ævisögulegrar kvikmyndar um poppdrottninguna. „Og hún farðaði mig! Það var besta augnablik lífs míns.“

Ferreira fékk þó ekki hlutverkið.