Gabriel Jesus
Gabriel Jesus
Brasilíski knattspyrnumaðurinn Gabriel Jesus hefur skrifað undir fimm ára samning við Arsenal. Kemur Jesus frá Englandsmeisturum Manchester City og reiðir Arsenal 45 milljónir punda af hendi fyrir sóknarmanninn.

Brasilíski knattspyrnumaðurinn Gabriel Jesus hefur skrifað undir fimm ára samning við Arsenal. Kemur Jesus frá Englandsmeisturum Manchester City og reiðir Arsenal 45 milljónir punda af hendi fyrir sóknarmanninn. Þetta staðfesti íþróttafréttamaðurinn Fabrizio Romano á Twitter-aðgangi sínum í gær.

Jesus skoraði 58 mörk í 159 úrvalsdeildarleikjum á fimm og hálfu ári með City, þar sem hann vann til fjölmargra titla. Hjá Arsenal hittir hann fyrir knattspyrnustjórann Mikel Arteta, sem var áður aðstoðarþjálfari City. isak@mbl.is