Á ferð Unnið er að því að leysa úr erfiðri fjárhagslegri stöðu Strætó.
Á ferð Unnið er að því að leysa úr erfiðri fjárhagslegri stöðu Strætó. — Morgunblaðið/Sigurður Bogi
„Við erum svolítið að bregðast við þessu ákalli,“ segir Jóhannes Rúnarsson, forstjóri Strætó. Næturstrætó snýr aftur um helgina. „Þetta er sett á tímabundið til tilraunar til loka september, þá verður metið hvernig til tekst.

„Við erum svolítið að bregðast við þessu ákalli,“ segir Jóhannes Rúnarsson, forstjóri Strætó. Næturstrætó snýr aftur um helgina.

„Þetta er sett á tímabundið til tilraunar til loka september, þá verður metið hvernig til tekst. Ef þetta tekst vel þá er mikill áhugi hjá sveitarfélögunum á höfuðborgarsvæðinu að halda þessu áfram. Þá skiptir máli að fólk noti þetta,“ segir Jóhannes.

Mikill skortur hefur verið á þjónustu leigubíla síðustu vikur og mánuði, sérstaklega hjá þeim sem sækja skemmtanalíf miðborgar Reykjavíkur.

Hagræðingaaðgerðir í apríl árið 2020 gerðu það að verkum að fella þurfti niður strætóferðir að næturlagi sem höfðu reynst mörgum vel.

„Þetta var ekki endurvakið því fjárhagsleg staða Strætó var erfið en það er verið að vinna í því að leysa hana og samhliða því vildu menn vekja þetta upp aftur,“ segir Jóhannes.