Útkall Björgunarsveitarmenn frá Landsbjörgu að störfum í einu útkallinu í vikunni, þar sem slösuðum manni var komið til byggða.
Útkall Björgunarsveitarmenn frá Landsbjörgu að störfum í einu útkallinu í vikunni, þar sem slösuðum manni var komið til byggða. — Ljósmynd/Landsbjörg
Björgunarsveitir Landsbjargar hafa haft í nógu að snúast í þessari viku. Útköll hafa verið á hverjum degi vikunnar vegna óhappa um land allt, bæði á landi og legi.

Björgunarsveitir Landsbjargar hafa haft í nógu að snúast í þessari viku. Útköll hafa verið á hverjum degi vikunnar vegna óhappa um land allt, bæði á landi og legi.

Þannig barst útkall snemma í gærmorgun frá tveimur konum sem voru veðurtepptar í tjaldi ofarlega á Fimmvörðuhálsi. Þær voru orðnar blautar og kaldar eftir baráttuna við veðrið um nóttina. Þær náðu að hringja í Neyðarlínuna og óskuðu eftir aðstoð.

Fyrstu björgunarsveitarmenn komu að konunum rétt upp úr klukkan 9 og náðu að gefa þeim heitt að drekka, næringu og þurr föt. Þær höfðu ekki orku í að ganga sjálfar til baka og því var beðið eftir að björgunarsveitarfólk á sexhjólum kæmist nær þeim. Klukkan 11 voru hjólin komin á vettvang og lögðu fljótlega af stað með konurnar til móts við björgunarsveitarbíla sem staddir voru á einhverju neðar á Fimmvörðuhálsinum.

Eftir hádegi voru allir komnir niður á láglendið, konurnar héldu til byggða og björgunarfólkið heim á leið eftir að hafa tekið daginn snemma, segir í tilkynningu frá Landsbjörg