— Morgunblaðið/Eggert
Íslenska kvennalandsliðið í knattspyrnu æfði í gær í fyrsta skipti eftir komuna til Englands en það dvelur í borginni Crewe, skammt frá Manchester, og býr sig þar undir fyrsta leik sinn á Evrópumótinu sem er gegn Belgum á sunnudaginn klukkan 16 að...

Íslenska kvennalandsliðið í knattspyrnu æfði í gær í fyrsta skipti eftir komuna til Englands en það dvelur í borginni Crewe, skammt frá Manchester, og býr sig þar undir fyrsta leik sinn á Evrópumótinu sem er gegn Belgum á sunnudaginn klukkan 16 að íslenskum tíma.

Leikmennirnir mættu ásamt starfsliði sínu til Englands síðdegis á miðvikudaginn en fram að því hafði liðið dvalið við æfingar í Herzogenaurach í Þýskalandi, að loknum vináttulandsleiknum í Póllandi í síðustu viku. Létt var yfir íslensku leikmönnunum eins og sjá má á myndinni á þeim Söru Björk Gunnarsdóttur, Karólínu Leu Vilhjálmsdóttur og Sveindísi Jane Jónsdóttur, og greinilega var góð einbeiting og mikil tilhlökkun í hópnum. Evrópumótið hófst í fyrrakvöld og keppni í D-riðlinum, riðli Íslands, hefst á sunnudaginn. 26 og 27