Ánægð Elena Rybakina fagnar eftir sigurinn á Simonu Halep.
Ánægð Elena Rybakina fagnar eftir sigurinn á Simonu Halep. — AFP/Adrian Dennis
Elena Rybakina frá Kasakstan og Ons Jabeur frá Túnis mætast í úrslitaleiknum í einliðaleik kvenna í tennis á Wimbledon-mótinu eftir óvænta frammistöðu þeirra beggja á mótinu til þessa.
Elena Rybakina frá Kasakstan og Ons Jabeur frá Túnis mætast í úrslitaleiknum í einliðaleik kvenna í tennis á Wimbledon-mótinu eftir óvænta frammistöðu þeirra beggja á mótinu til þessa. Rybakina vann hina sigurstranglegu Simonu Halep frá Rúmeníu, 6:3 og 6:3, í undanúrslitunum í gær og batt endi á langa sigurgöngu hennar. Ons Jabeur verður fyrsta konan frá norðurhluta Afríku til að komast í úrslitaleik á risamóti en hún vann Tatjönu Maria frá Þýskalandi í undanúrslitunum í gær, 6:2, 3;6 og 6:1.