Óvissa Cristiano Ronaldo er í leyfi frá æfingum hjá Manchester Utd.
Óvissa Cristiano Ronaldo er í leyfi frá æfingum hjá Manchester Utd. — AFP/Jorge Guerrero
Manchester United sendi í gær frá sér yfirlýsingu vegna frétta um portúgalska knattspyrnumanninn Cristiano Ronaldo undanfarna daga.

Manchester United sendi í gær frá sér yfirlýsingu vegna frétta um portúgalska knattspyrnumanninn Cristiano Ronaldo undanfarna daga. Ronaldo hefur enn ekki hafið æfingar með United eftir sumarfríið og mikið hefur verið fjallað um að hann sé líklega á förum frá enska félaginu.

„Þrátt fyrir að öðru sé haldið fram í fréttum þá hefur ekkert breyst í afstöðu okkar til Cristiano. Hann á eitt ár eftir af samningi sínum og er ekki til sölu, “ segir í tilkynningunni frá United.