Þóra Grétarsdóttir fæddist 9. desember 1947. Hún lést 10. júní 2022. Útför Þóru fór fram 20. júní 2022.
Elsku systir.
Síðasti valsinn
Gott er ein með guði að vaka,
gráta hljótt og minnast þín,
þegar annar ylur dvín,
seiða liðið líf til baka,
og láta huggast systir mín!
Við skulum leiðast eilífð alla,
aldrei sigur lífsins dvín.
Ég sé þig, elsku systir mín.
Gott er þreyttu höfði að halla
að hjarta guðs og minnast þín.
(Jóhannes úr Kötlum)
Sigurbjörg Grétarsdóttir.
Gráttu ekki
yfir góðum
liðnum tíma.
Njóttu þess heldur
að ylja þér við minningarnar,
gleðjast yfir þeim
og þakka fyrir þær
með tár í augum,
en hlýju í hjarta
og brosi á vör.
Því brosið
færir birtu bjarta,
og minningarnar
geyma fegurð og yl
þakklætis í hjarta.
(Sigurbjörn Þorkelsson)
Með kærleikskveðju og þakklæti fyrir gefandi samferð á ævinnar vegi elsku Þóra.
Þín vinkona,
Dýrfinna Jónsdóttir.