Guðmundur Atli Helgason fæddist 19. ágúst 2008 á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja. Hann lést á Karolinska sjúkrahúsinu í Stokkhólmi í Svíþjóð 24. júní 2022.
Foreldrar hans eru Helgi Már Magnússon og Þuríður Ásta Sigurjónsdóttir.
Systkini hans eru Írena Ósk, Júlía Mist, Brynja Björg, Hrafnhildur Gyðja og Óðinn Váli.
Föður- eða uppeldissystkini eru Elva Dögg Magnúsdóttir, Sigurður Magnússon, Bjarney Magnúsdóttir og Sölvi Fannar Sölvason.
Guðmundur flutti ásamt systur sinni Írenu, sem fram til þess hafði verið hans helsta haldreipi í lífinu, til Hrafnhildar ömmu sinnar og Magnúsar afa síns vorið 2014 þegar hann var á sjötta ári. Afi þeirra lést árið 2018.
Haustið 2019 kom svo Sölvi Leví Pétursson, unnusti Hrafnhildar, í fjölskylduna. Hann reyndist Gumma föðurleg stoð og vinur sem kenndi honum mikið með reynslu sinni síðustu árin.
Útförin Guðmundar fer fram frá Ytri-Njarðvíkurkirkju í dag, 8. júlí 2022, klukkan 12.
Himneskt
er að vera
með vorið
vistað í sálinni,
sólina
og eilíft sumar
í hjarta.
Því hamingjan
felst í því
að vera með
himininn
í hjartanu.
(Sigurbjörn Þorkelsson)
Ég sendi aðstandendum og vinum samúðarkveðju og bið ég góðan Guð að styrkja ykkur um komandi tíð.
Guðmundur Árni Sigurðsson.