Fagn Kosovare Asllani fagnar marki sínu fyrir Svíþjóð í gær.
Fagn Kosovare Asllani fagnar marki sínu fyrir Svíþjóð í gær. — AFP
Svíþjóð og Holland tryggðu sér í gær efstu tvö sæti C-riðils á EM kvenna í fótbolta með stórsigrum. Svíþjóð vann Portúgal 5:0 og Holland vann Sviss 4:1.
Svíþjóð og Holland tryggðu sér í gær efstu tvö sæti C-riðils á EM kvenna í fótbolta með stórsigrum. Svíþjóð vann Portúgal 5:0 og Holland vann Sviss 4:1. Filippa Angeldahl skoraði tvö mörk fyrir Svíþjóð og þær Kosovare Asllani og Stina Blackstenius eitt hvor. Eitt markanna var sjálfsmark. Romee Leuchter gerði tvö fyrir Holland og Victoria Pelova eitt. Eitt marka Hollands var sjálfsmark. Svíþjóð tryggði sér efsta sætið með sigrinum og mætir liðinu sem endar í öðru sæti í D-riðli Íslands í átta liða úrslitum. Holland mætir Frökkum.