Örlæti. S-NS
Norður | |
♠K109875 | |
♥84 | |
♦G108 | |
♣K4 |
Vestur | Austur |
♠32 | ♠ÁD6 |
♥1062 | ♥D975 |
♦732 | ♦ÁD5 |
♣DG987 | ♣1032 |
Suður | |
♠G4 | |
♥ÁKG3 | |
♦K964 | |
♣Á65 |
Suður spilar 4♠.
Gölturinn tekur því illa að vera vændur um nísku. „Jú-jú, ég nýti vissulega hvern einasta héppa. En ég get verið örlátur ef mikið liggur við.“ Gölturinn rétti fuglunum handskrifaðan miða með kunnuglegum táknum: „Suður spilar fjóra spaða eftir grandopnun og yfirfærslu. Laufdrottning út.“
Mörgæsin hagræddi gleraugunum á goggnum: „Ég sé ekki vandamálið. Við gefum tvo slagi á tromp og einn á tígulás. Spaðinn liggur illa, en tígullinn vel.“ Uglan tók í sama streng: „Við svínum í báðum litum. Það er nóg að önnur svíningin gangi.“
Sagnhafi komst að sömu niðurstöðu. Hann tók fyrsta slaginn heima og svínaði strax spaðagosa. Gölturinn var í austur og var flottur á því – drap með ÁS! Spilaði svo tígulás og meiri tígli. „Og hvað haldið þið að sagnhafi hafi gert?“ spurði Gölturinn og brosti blíðlega.