Framtíð Ég er þess fullviss að verkfræðin getur í orkumálum lagt þung lóð á vogarskálar við hönnun lausna sem verða enn meira í sátt við umhverfið en þær sem fyrir eru, segir Sæmundur Sæmundsson hér í viðtalinu.
Framtíð Ég er þess fullviss að verkfræðin getur í orkumálum lagt þung lóð á vogarskálar við hönnun lausna sem verða enn meira í sátt við umhverfið en þær sem fyrir eru, segir Sæmundur Sæmundsson hér í viðtalinu. — Morgunblaðið/Eggert
[ Smellið til að sjá stærri mynd ]
Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is „Með árunum safnast í reynslubankann sem skilar okkur dýrmætri þekkingu,“ segir Sæmundur Sæmundsson, framkvæmdastjóri EFLU verkfræðistofu og þekkingarfyrirtækis.

Sigurður Bogi Sævarsson

sbs@mbl.is

„Með árunum safnast í reynslubankann sem skilar okkur dýrmætri þekkingu,“ segir Sæmundur Sæmundsson, framkvæmdastjóri EFLU verkfræðistofu og þekkingarfyrirtækis. Fyrirtækið fékk á dögunum Útflutningsverðlaun forseta Íslands fyrir lausnir sínar og verkefni sem vakið hafa athygli og skapað viðskipti víða erlendis. Ekki síst eru það lausnir í orkuflutningskerfum, það er háspennulínum og tengivirkjum og svo ýmis stjórnbúnaður fyrir orkufrekan iðnað. Sömuleiðis hefur EFLA komið að þróun og tæknivinnu við jarðvarmavirkjanir víða um heim. Fyritækið hefur einnig sérþekkingu á hönnun samgöngumannvirkja og má þar nefna mörg verkefni við brúa- og vegahönnun í Noregi.

Úthald og framsýni

„Verðlaunin eru viðurkenning fyrir úthald og framsýni því markaðssetning á erlendri grundu tekur langan tíma. Við erum líka stolt af því að eftir því sé tekið að verkfræðin er hluti af fjórðu stoðinni í gjaldeyrisöflun þjóðarinnar; það er hugviti sem skilar samfélaginu æ meiri tekjum,“ segir Sæmundur Sæmundsson.

EFLA í núverandi mynd varð til árið 2008 með sameiningu fjögurra verkfræðistofa, Línuhönnunar, RTS, Afls og Verkfræðistofu Suðurlands. Útkoman varð sterk eining sem hefur stækkað með samrunum og kaupum á fleiri fyrirtækjum og í dag er EFLA þekkingarfyrirtæki á heimsvísu, segir framkvæmdastjórinn. Höfuðstöðvar eru á Íslandi og umsvifin sannarlega mest hér heima. Útlönd vega þó æ þyngra og í dag er EFLA með starfsemi í sjö löndum, Noregi, Svíþjóð, Póllandi, Frakklandi, Þýskalandi, Skotlandi og Tyrklandi. Þar að auki hafa síðastu áratugina verið unnin verkefni á fjölmörgum sviðum í meira en 40 löndum. Yfir tímabilið 2009-2021 er núvirt heildarvelta í erlendri starfsemi og verkefnum EFLU um 20 milljarðar króna en heildarvelta samstæðunnar á síðasta ári var 7,2 milljarðar króna.

Í dag eru starfsmenn EFLU hér heima rúmlega 300. Um 80 starfa erlendis; helmingurinn í Osló. „Hér heima erum við í auknum mæli að ráða erlent starfsfólk sem býr á Íslandi, enda búa tugir þúsunda útlendinga hérlendis, margir vel menntaðir og koma inn með nýja þekkingu. Áherslan næstu misseri verður að þjálfa okkar starfsfólk enn frekar í að vinna saman í hópum sem ná yfir svið, svæði og lönd. Þannig dreifist þekking víðar.“

Leiða hringrásarhugsun

Að sögn Sæmundar hefur sérþekking starfsfólks EFLU við hönnun orkuflutningsmannvirkja skapast á síðustu áratugum í verkefnum fyrir Landsnet og önnur fyrirtæki á sama sviði. Finna hafi þurft lausnir sem duga í harðbýlu landi. Þó að gengið hafi á með óvissu og efnahagssveiflum í síbreytilegu viðskiptaumhverfi og tækniþróun verið ör hafi EFLA alltaf haldið kúrs, ekki misst sjónar á langtímamarkmiðum né gefið eftir í gæðum. Í dag sé fyrirtækið að skáka stærstu verkfræðistofum í Evrópu í gæðaþætti tilboða við hönnun mannvirkja til raforkuflutninga. Hjá EFLU sé einnig til staðar mikil þekking á jarðvarma og virkjun hans. Mikil eftirspurn sé eftir slíkum lausnum nú á tímum grænna áherslna og orkuskipta.

EFLA er leiðandi í umhverfismálum og hringrásarhugsun. Nú tvinnum við saman reynslu okkar og þekkingu á þessum mikilvægu þáttum inn í sem flest verkefni. Umhverfisþátturinn vegur þungt í þróun og uppbyggingu í dag, bæði í hönnun, á framkvæmdatíma og við rekstur mannvirkja á líftíma þeirra. Verkfræði nútímans er afar spennandi, enda kallar samtíminn eftir nýjum lausnum á mörgum sviðum, samanber kröfurnar sem nú gilda í umhverfismálum. Ein stærsta áskorunin er að fá fólk til að manna allar stöður. Báðir stóru háskólanir hér heima skila vel menntuðu fólki, en ég tel mikilvægt að strax í grunnskóla séu ungu fólki kynntir þeir möguleikar sem raungreinamenntun opnar. Möguleikarnir eru miklir og við Íslendingar eigum að undirbyggja fjórðu stoðina meira.“

Meira þarf að virkja, er sú stefna sem stjórnvöld boða í dag. Eru verkfræðingar þar með í pokahorninu einhverjar þær lausnir þannig að virkjanir og flutningsmannvirki séu í betri sátt við umhverfið?

Sjálfstæði og grænt eldsneyti

„Hönnun virkjana og orkuflutningsmannvirkja eru í stöðugri þróun og umhverfismál hafa þar síaukið vægi. Hér þarf að finna leiðir milli þeirra sem ekkert vilja virkja og þeirra sem vilja virkja sem mest,“ segir Sæmundur. „Virkja þarf meira ef Íslendingar ætla að ná settum markmiðum um orkuskipti og kolefnishlutleysi. Þar er Ísland í einstakri aðstöðu til að vera leiðandi í heimunum. Hér blandast líka inn í ýmis önnur sjónarmið eins og sjálfstæði landsins varðandi grænt eldsneyti til framtíðar. Ég er þess fullviss að verkfræðin getur lagt þung lóð á vogarskálarnar við hönnun lausna sem verða enn meira í sátt við umhverfið en þær sem fyrir eru. En við getum samt ekki horft fram hjá því að við þurfum meiri orku til að ljúka orkuskiptunum, að öðrum kosti stefnir í óefni varðandi hnattræna hlýnun.“

Hver er hann?

• Sæmundur Sæmundsson er fæddur 1962 og var ráðinn framkvæmdastjóri EFLU á sl. ári. Hann er tölvunarfræðingur, menntaður í Texas í Bandaríkjunum og hefur einnig numið stjórnunarfræði vestanhafs.

• Áður var Sæmundur forstjóri Borgunar, framkvæmdastjóri hjá Sjóvá og forstjóri Teris, sem var fyrirtæki í upplýsingatækni í eigu sparisjóða. Hann hefur setið í stjórn Festu – miðstöðvar um samfélagsábyrgð fyrirtækja. Nú stjórnarformaður Hringrásar og er í stjórn Viðskiptaráðs.