Allri áhöfn frystitogarans Sólborgar RE-27 hefur verið sagt upp.
Allri áhöfn frystitogarans Sólborgar RE-27 hefur verið sagt upp. Runólfur Viðar Guðmundsson, framkvæmdastjóri Útgerðarfélags Reykjavíkur og eigandi frystitogarans, staðfestir þetta og segir að ástæða uppsagnanna sé sú að félagið íhugi að kaupa nýjan togara.
Ráðningarsamband í lausu lofti
Runólfur segir það eiga eftir að koma í ljós hvort áhöfnin verði ráðin áfram og bætir við að menn séu ekki ráðnir hjá útgerðinni heldur á einstök skip. „Þannig að þegar þú skiptir um skip þá þarftu að segja fólki upp og skrifa undir nýjan ráðningarsamning hjá hverjum og einum,“ segir hann. Spurður hvort starfsfólkið sé þá í lausu lofti um áframhaldandi ráðningu, svarar Runólfur því játandi. Ekki liggja þó fyrir frekari upplýsingar um nýtt skip.