Hringferð Ítalski hjólreiðamaðurinn Andrea Devicenzi á leið um Ísland.
Hringferð Ítalski hjólreiðamaðurinn Andrea Devicenzi á leið um Ísland. — Ljósmynd/Andrea Baglio
Ítalski hjólreiðakappinn Andrea Devicenzi er rétt hálfnaður með hringinn í kring um landið. Í gær snæddi hann morgunverð á Svalbarða í Suður-Þingeyjarsýslu áður en hann lagði af stað til Þverár.

Ítalski hjólreiðakappinn Andrea Devicenzi er rétt hálfnaður með hringinn í kring um landið. Í gær snæddi hann morgunverð á Svalbarða í Suður-Þingeyjarsýslu áður en hann lagði af stað til Þverár.

Devicenzi missti annan fótinn í mótorhjólaslysi þegar hann var 17 ára gamall en hefur ekki látið það stoppa sig og hjólað víða um heim. Hann lagði af stað frá Reykjavík hinn 10. júlí ásamt þeim Simone Pinzolo fararstjóra og Andrea Baglio ljósmyndara sem tekur upp heimildakvikmynd um ferðina.

Félagarnir hafa eingöngu gist í tjaldi, en Simone segir veðrið hafa leikið þá grátt í ferðinni. Hann segir rok og rigningu vera helstu þolraun sem Andrea hafi mætt í hjólreiðunum. „Að kynnast fólkinu hérna er það sem gerir þessa ferð svo sérstaka, en við höfum bara einu sinni lent í leiðinlegu tilviki og var það þegar bóndi neitaði okkur að tjalda í náttúrunni og var hann frekar dónalegur í þokkabót.“

Simone gerir ráð fyrir því að ferðahópurinn komi til Reykjavíkur hinn 30. júlí.